Leiðarvísir
Komdu versluninni þinni í gang
Stutt yfirferð fyrir nýja seljendur. Þú getur bætt við vörum handvirkt, flutt þær inn úr Excel, eða tengt Shopify eða WooCommerce og samstillt sjálfvirkt.
1. Bæta við vöru handvirkt
- Farðu á Umsjónarsíðu og smelltu á flipann Vörur.
- Smelltu á Bæta við vöru.
- Fylltu inn titil, lýsingu, verð (í krónum) og flokk.
- Bættu við myndum (slóð á mynd eða hladdu upp).
- Settu birgðatölu og smelltu á Vista. Varan birtist á forsíðu strax.
2. Innflutningur úr Excel (CSV)
Excel-innflutningur kemur í næsta áfanga. Þangað til mælum við með að nota handvirkt skráningarformið fyrir 1–50 vörur, eða tengja Shopify eða WooCommerce ef þú ert nú þegar með verslun.
Ef þú vilt prófa hraðan handvirkan innflutning, sendu okkur CSV skrá á halloo@gaman.is og við hjálpum þér.
3. Tengja Shopify eða WooCommerce
Ertu með Shopify-verslun? Opnaðu Stillingar → Tenging og veldu Shopify. Leiðbeiningar með myndum fylgja hverju skrefi, og tengingin tekur um tíu mínútur.
Leiðbeiningarnar um tengingu, ásamt nákvæmum lista yfir heimildir sem þarf að veita, eru á einum stað: á Umsjónarsíðu undir Stillingar → Tenging. Fyrir Shopify: opnaðu „Hvernig bý ég til appið?“. Fyrir WooCommerce mælum við með Gaman.is viðbótinni; leiðbeiningarnar eru hér fyrir neðan.
WooCommerce
Setja upp Gaman.is viðbót · Mælt með
- 1
Sæktu viðbótina
Sæktu viðbótina á Gaman.is undir Tenging → WooCommerce.
Sækja viðbótina (útgáfa 0.5.1)Öryggi og meðferð gagna (PDF)Fyrir tæknifólk og eigendur sem vilja vita nákvæmlega hvað viðbótin gerir.
- 2
Settu hana upp í WordPress
Í WordPress: Viðbætur → Bæta við → Hlaða upp viðbót → veldu skrána → Setja upp → Virkja.
- 3
Búðu til lykil
Á Gaman.is: Tenging → WooCommerce → „Búa til lykil“.
- 4
Tengdu í WordPress
Í WordPress: WooCommerce → Gaman.is → límdu lykilinn inn → „Tengjast Gaman.is“.
- 5
Staðfestu tenginguna
Þegar stendur „Tengt við Gaman.is – allt í lagi“ ertu tengd/ur.
Í WordPress: Viðbótin er undir WooCommerce → Gaman.is í WordPress, með þremur flipum: Yfirlit (staða tengingarinnar, síðustu 7 dagar og aðgerðir), Stillingar (pantanir og tenging) og Aðgerðaskrá (allt sem Gaman.is breytir í versluninni og hafnaðar beiðnir). Lyklinum skiptir þú um undir Stillingar → Tenging → „Skipta um lykil“, og „Aftengja Gaman.is“ er neðst í sama reit.
Uppfærsla: Viðbætur → Bæta við → Hlaða upp viðbót → veldu nýju skrána → „Skipta út núverandi útgáfu“. Lykillinn og tengingin haldast.
Ef Gaman.is nær ekki sambandi: leyfðu beiðnir á /wp-json/gaman/v1/ í Cloudflare eða öryggisviðbót.
Gefa aðgang með lyklum · Ekki mælt með
Þú býrð til WooCommerce lykla í stillingum verslunarinnar og límir þá hér inn. Lykillinn veitir Gaman.is aðgang að allri versluninni, því WooCommerce getur ekki takmarkað hann.
