Íslenskt markaðstorg — fyrir alla.
Gaman.is sameinar íslenskar vefverslanir á einum stað. Gaman.is er einfaldlega aukabúðargluggi fyrir vefverslanir sem auðveldar kaupendum að finna vörurnar þínar.
Það er mjög einfalt að tengja vefverslun við Gaman.is, hvort sem hún keyrir á WooCommerce, Shopify eða er sérsmíðuð með aðstoð gervigreindar. Pantanir koma beint inn í þitt kerfi og engin þörf er á tvöföldu bókhaldi. Tengja, flokka og allt klárt.
Viðskiptavinir geta verslað vörur úr mörgum vefverslunum á einum stað, sem auðveldar þeim aðgengi að vörum úr íslenskum vefverslunum.
Ein karfa, margar verslanir
Settu vörur úr mismunandi verslunum í sömu körfu og greiddu í einu skrefi. Við greiðum sendinguna og búum til sendingarmiðann, verslunin pakkar og afhendir pakkann flutningsaðila, og við sjáum um uppgjör við hvern seljanda.
Sanngjörn þóknun
Engin mánaðargjöld. Við tökum aðeins lítið hlutfall af hverri sölu — og þú færð greitt beint inn á reikning.
Allt á íslensku
Stjórnborð, skilaboð, kvittanir og kaupandaupplifun — allt hannað og skrifað á íslensku, fyrir íslenskan markað.
Dropp og Pósturinn
Sjálfvirk samþætting við Dropp og Póstinn svo þú þurfir aðeins að prenta út miðann. Viðskiptavinurinn fær rakningu beint í pósti.
Ert þú með verslun?
Sæktu um aðgang á 2 mínútum. Við yfirförum umsóknina og þú getur byrjað að selja um leið og hún er samþykkt.