Skilmálar
Hér finnur þú upplýsingar um greiðslu, ábyrgð og afhendingu.
1. Um Gaman.is og þessa skilmála
Gaman.is er rekið af Áfram með Smjörið ehf., kt. 430910-2130, Hólabraut 4a, 220 Hafnarfirði („Gaman“). Á Gaman.is eru seldar vörur frá íslenskum vefverslunum. Gaman.is er seljandi allra vara sem keyptar eru á vefnum: kaupsamningurinn er á milli kaupanda og Gaman, Gaman tekur við greiðslunni og gefur út reikning fyrir kaupunum.
Vefverslanirnar sem vörurnar koma frá („verslanir“) selja Gaman vörurnar, pakka þeim og senda þær beint til kaupanda. Nafn verslunarinnar kemur fram á hverri vöru.
Kaupendur skiptast í tvo hópa með ólíkan rétt samkvæmt lögum: einstaklinga sem kaupa til einkanota (neytendur, sbr. lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 16/2016 um neytendasamninga) og fyrirtæki eða aðra rekstraraðila (sbr. lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup). Þar sem rétturinn er ólíkur er það tekið fram hér að neðan.
Þegar pöntun er staðfest telst kaupandi hafa samþykkt þessa skilmála. Skilmálarnir eru aðeins birtir á íslensku.
Síðast uppfært: 2. nóvember 2026
2. Pöntun og staðfesting
Pöntun er staðfest þegar greiðsla hefur borist. Kaupandi fær staðfestingu í tölvupósti ásamt reikningi frá Gaman. Innihaldi pöntun vörur frá fleiri en einni verslun eru þær sendar sér frá hverri verslun og geta borist á mismunandi tíma.
3. Verð og greiðsla
Verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður kemur fram áður en greitt er. Verð eru birt með fyrirvara um augljósar innsláttarvillur; komi slík villa upp áskilur Gaman sér rétt til að hætta við pöntunina og endurgreiða kaupanda að fullu.
Greitt er með debet- eða kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Teya. Gaman geymir ekki kortaupplýsingar.
Varan er eign Gaman þar til hún hefur verið greidd að fullu.
4. Afhending
Kaupandi velur sendingarmáta í pöntunarferlinu, eftir því sem í boði er fyrir hverja vöru: Dropp (box eða heimsending), Pósturinn (Póstbox, pósthús eða heimsending), að sækja vöruna til verslunar eða heimsendingu verslunar.
Verslunin pakkar vörunni og afhendir hana flutningsaðila, venjulega innan tveggja virkra daga frá staðfestingu pöntunar. Sé lengri afhendingartími á vöru, t.d. vara í forsölu eða sérpöntun, kemur hann fram í vörulýsingu og gildir hann þá. Sé enginn afhendingartími tilgreindur er varan afhent í síðasta lagi innan 30 daga.
Kaupandi fær rakningarnúmer þegar varan er komin í hendur flutningsaðila.
4a. Ófyrirséðar aðstæður
Verði tafir á afhendingu vegna atvika sem Gaman hefur ekki stjórn á og gat ekki séð fyrir, svo sem náttúruhamfara, verkfalla eða sambærilegra atvika hjá flutningsaðila, ber Gaman ekki ábyrgð á töfinni. Kaupandi er látinn vita og getur fallið frá kaupum og fengið endurgreitt ef töfin verður veruleg.
5. Skilaréttur (14 dagar)
Neytendur geta fallið frá kaupum innan 14 daga frá því að varan barst þeim, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Hvernig skilað er:
- Sendu tölvupóst á sala@gaman.is innan 14 daga frá móttöku, með pöntunarnúmeri og þeirri vöru sem á að skila. Ef vara er augljóslega röng eða gölluð er best að tilkynna innan 3 sólarhringa frá móttöku.
- Sendu vöruna innan 14 daga frá tilkynningunni til: Gaman.is, Hólabraut 4a, 220 Hafnarfirði. Kaupandi greiðir sendingarkostnað vegna skila.
- Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi. Kaupandi getur borið ábyrgð á verðrýrnun ef vara hefur verið notuð umfram það sem þarf til að skoða hana.
Gaman hefur samband við verslunina vegna skilanna og endurgreiðir kaupverðið og upphaflegan sendingarkostnað (ódýrasta venjulega sendingarmáta) innan 14 daga frá tilkynningu um skil. Gaman má bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist. Endurgreitt er á sama greiðslukort og greitt var með.
Skilarétturinn nær ekki til:
- innsiglaðra vara sem ekki henta til skila af heilsu- eða hreinlætisástæðum ef innsiglið eða umbúðirnar hafa verið rofnar, t.d. nærfata, sundfata, snyrtivara og húðvara.
- vara sem eru sérsniðnar eða gerðar eftir óskum kaupanda,
- vara sem geta skemmst eða runnið út fljótt,
- innsiglaðra hljóð- eða myndupptaka eða hugbúnaðar ef innsiglið hefur verið rofið,
- stafrænna vara þegar niðurhal eða aðgangur er hafinn með samþykki kaupanda.
Fyrirtæki: skilaréttur gildir ekki um kaup fyrirtækja nema verslunin bjóði hann.
6. Gallar og kvartanir
Gaman ber ábyrgð gagnvart kaupanda á því að varan sé í samræmi við lýsingu og ógölluð. Útlitsgalli sem tilgreindur er í vörulýsingu, t.d. á B-vöru eða sýningareintaki, telst ekki galli.
Neytendur hafa tvö ár frá afhendingu til að kvarta undan galla, en fimm ár ef vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími, sbr. lög nr. 48/2003. Fyrirtæki hafa eitt ár frá afhendingu.
Láttu vita af galla á sala@gaman.is sem fyrst eftir að hans verður vart, með pöntunarnúmeri og myndum ef við á. Gaman hefur samband við verslunina og þarf hæfilegan tíma til að fara yfir málið með henni, en svarar kaupanda án ástæðulauss dráttar. Sé varan gölluð á kaupandi rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða riftun kaupanna, eftir því sem lög kveða á um.
Spurningar um vöruna sjálfa, t.d. stærðir, efni, notkun eða tæknileg atriði, er best að senda beint á viðkomandi verslun; netfang hennar fylgir pöntunarstaðfestingunni. Skil, gallar, kvartanir og önnur réttarleg atriði fara í gegnum Gaman á sala@gaman.is.
7. Ábyrgð
Gaman ber ábyrgð á vörunni sem seljandi gagnvart kaupanda samkvæmt lögum. Gagnvart fyrirtækjum ber Gaman ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, t.d. rekstrartapi eða töpuðum tekjum, nema um stórfellt gáleysi eða ásetning sé að ræða. Gagnvart neytendum gilda ákvæði laga um neytendakaup.
8. Reikningar og virðisaukaskattur
Gaman gefur út reikning fyrir hverri pöntun og sendir hann kaupanda í tölvupósti. Óski kaupandi eftir reikningi á kennitölu fyrirtækis má slá hana inn í pöntunarferlinu.
9. Persónuvernd
Gaman notar upplýsingar sem kaupandi gefur upp aðeins til að afgreiða pöntunina. Verslunin og flutningsaðilinn fá aðeins þær upplýsingar sem þarf til að senda vöruna: nafn, afhendingarstað, síma og netfang. Nánar um vinnslu persónuupplýsinga og vefkökur í persónuverndarstefnu Gaman.is.
10. Breytingar á skilmálum
Gaman getur breytt þessum skilmálum. Breytingar taka gildi við birtingu á vefnum. Um hverja pöntun gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar hún var staðfest.
11. Lög og ágreiningur
Um skilmálana og öll kaup á Gaman.is gilda íslensk lög. Náist ekki samkomulag getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Dómsmál skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
12. Hafðu samband
Gaman.is – Áfram með Smjörið ehf., kt. 430910-2130, Hólabraut 4a, 220 Hafnarfirði. Netfang: sala@gaman.is
13. Gjafabréf
Gjafabréf Gaman gilda í fjögur ár frá útgáfudegi og má nota í öllum verslunum á gaman.is, að hluta eða öllu leyti, og fyrir sendingarkostnaði. Ónotuð inneign geymist á gjafabréfinu út gildistímann. Ekki er hægt að skipta gjafabréfi fyrir peninga eða nota það til að kaupa önnur gjafabréf. Ef vara sem greidd var með gjafabréfi er endurgreidd fer upphæðin aftur inn á gjafabréfið. Týnist gjafabréf getum við sent það aftur á netfang viðtakanda; hafðu samband við okkur.