Soja vax 16 kg - Golden Wax 464 (heill kassi · ekki frí sending)

Soja vax 16 kg - Golden Wax 464 (heill kassi · ekki frí sending)

Frá Föndurlist

31.500 kr.

Verð með VSK (24%)

Aðeins 10 eftir

1
Skoða körfu

⚠️ Athugið: Þessi vara fellur EKKI undir fría sendingu. Vegna þyngdar (16 kg) sendist hún á Dropp-gjaldi fyrir þungar sendingar (1.990 kr).

Golden Wax 464 (GW 464) í 16 kg kassa — frábært verð fyrir þá sem framleiða kerti í magni. Þetta er sama vinsæla 100% sojavaxið og í minni pakkningunum, nú í hagstæðum heilum kassa (pastillur).

GW 464 er fyrsta flokks ílátavax (container wax) með góðri viðloðun við gler, lágu bræðslumarki og frábærum ilmburði. Það gefur slétt, rjómakennt yfirborð og dregur úr frosti (frosting).

  • Bræðsluhiti: 70–85°C
  • Hellihiti: oftast 48–60°C, fer eftir íláti og ilmi.
  • Ilmmagn: allt að 6–8% (athugið alltaf TDS ilmsins).
  • Meðunartími (cure): 7–14 dagar fyrir bestan ilmburð.

100% soja, vegan og úr sjálfbærum ProTerra-vottuðum sojabaunum (non-GMO).

Nettóþyngd: 16 kg. Vegna þyngdar sendist þessi vara á sérstöku Dropp-gjaldi fyrir þungar sendingar.

Þér gæti líka líkað