
Píparinn – pípuhattur
Frá Sixpensari.is
Verð með VSK (24%)
Stærð
Veldu stærð til að sjá verð og lager.
Pípuhatturinn er einn glæsilegasti hattur sem til er og setur punktinn yfir i-ið við hátíðleg tilefni. Píparinn er klassískur svartur pípuhattur úr felti frá Ítalíu – vandaður hattur sem heldur lögun sinni og er gerður til að nota aftur og aftur, ólíkt einnota búningahöttum.
Tilefni: árshátíðir, brúðkaup, áramót, þorrablót, leikhús, ljósmyndatökur og þemaveislur.
Stærðir: 57, 59 og 61 cm.
Hvernig vel ég stærð?Mældu ummál höfuðsins með málbandi, um 1 cm fyrir ofan augabrúnir og eyru. Talan í sentímetrum er stærðin þín. Ef þú ert á milli stærða mælum við með stærri stærðinni.
UmhirðaBurstaðu hattinn með mjúkum bursta og geymdu hann á þurrum stað þar sem barðið liggur ekki undir þrýstingi. Ef hann blotnar skaltu láta hann þorna við stofuhita, ekki við ofn.
Sendum á næstu Droppstöð um allt land.





