
Blackstar
Frá Happafengur
Verð með VSK (24%)
Stærð
Veldu stærð til að sjá verð og lager.
Kolsvört, töff og alhliða. Fast action stöng með keramík línuhringjum, snake guides og stórum endahring. Smíðuð úr blöndu af 30T og 40T carboni sem gerir hana næma í toppinn og þrautseiga í ferðalögum og hnjaski. 4WT stöngin er 87 grömm að þyngd sem gerir Blackstar að þægilegum og þrautseigum heilsdagsfélaga sem er til í hvað sem er.
Auðveld í meðförum og kastar af nákvæmni, sérstaklega á meðalvegalengdum sem henta vel í silungsveiði.
Aðeins um 87 g í 4WT. Liggur einstaklega létt og vel í hendi. Blankið er unnið úr blöndu af 30T og 40T kolefnistrefjum sem skilar einstaklega léttri og næmri stöng.
Dugir vel í kastlengdir sem flestir veiðimenn þurfa á að halda. Notendavæn og sveigjanleg í köstum. Ekki hönnuð sérstaklega til að skera sig í gegnum sterkan mótvind, en skilar á móti mikilli nákvæmni og góðri stjórn í framlögn.
Blackstar er búin gæða íhlutum: Pacbay Titanium snake-hringjum og Minima Ring stripping-hring. CNC-fræst álhjólasæti með kolefnistrefjainnskoti og AAA gæða kork í handfangi.
Kemur í góðri tösku
Allar stangir frá MaxCatch koma í grjóthörðum cordura klæddum og fóðruðum geymsluhólkum sem þola ferðalög og hnjask. Þetta er stöng sem maður hendir í skottið á bílnum áhyggjulaus og fer með hvert á land sem er. Þú veiðir ekki mikið ef stöngin er heima er það?






