Avid Pro fluguhjól

Avid Pro fluguhjól

Frá Happafengur

14.900 kr. – 18.900 kr.

Verð með VSK (24%)

Línuþykkt

Veldu línuþykkt til að sjá verð og lager.

1
Skoða körfu

Glæsilegt nútímalegt hjól fyrir alla almenna veiði, fræst úr 6061-T8 álblendi með öflugri tæringarvörn á yfirborðinu. Þetta hjól þolir mikla notkun.

Kemur í 3-5WT og 5-7WT. Fallega gyllt og glæsilegt hjól.

AVID PRO er hannað fyrir þá sem gera miklar kröfur. Smáatriðin eru úthugsuð með afköst, endingu og nákvæmni að leiðarljósi án málamiðlana.

Premium álsmíði

Hjólið er CNC-unnið úr 6061-T8 álblendi sem tryggir styrk og nákvæmni í framleiðslu. Nóðað yfirborð veitir góða tæringarvörn og hönnunin er gerð til að standast högg, álag og erfið skilyrði – ár eftir ár í á eftir á.

Öflug bremsa

AVID PRO er búið nýstárlegri bremsuhönnun með stórum snerli sem stillir bremsuna frá núll í topp í einum hring. Númeraðar stillingar gera þér kleift að fínstilla bremsuna af nákvæmni.

  • Gæða kork- og teflon skinnur í bremsunni
  • Ryðfríar styrktarplötur
  • Stiglaus og nákvæm stilling

Silkimjúk, jöfn og skilvirk bremsa – jafnvel þegar fiskurinn tekur af krafti. Hjólið er tvíhent og smíðin á hjólin gera örfhentum auðvelt að fjarlægja spóluna og skipta á milli vinstri og hægri inndráttar.

Afkastamikil spóluhönnun

Ofurstór Large Arbor spóla skilar 36% hraðari línuinndrætti í hverjum hring og dregur verulega úr línu-minni og sveigjumyndun. Létt en ótrúlega sterk smíði með styrktum spöngum tryggir hámarks burðarþol án óþarfa þyngdar.

AVID PRO er einfaldlega byggt til að ráða við stóran fisk – og gera það með stíl, nákvæmni og óbilandi áreiðanleika.

Þér gæti líka líkað