
1X-4X fluorcarbon Taumar á spindli
Frá Happafengur
2.990 kr.
Verð með VSK (24%)
Aðeins 1 eftir
Hver hefur ekki lent í því að ætla að breyta um taumaþykkt og þurfa að vaða í land, fæla allan fiskinn í burtu og róta svo í töskunni og leita að öðru taumaefni? Hvernig væri að vera bara með fjóra tauma dinglandi utan á sér eins og fólkið á youtube?
Töff og ódýr spindill sem þú krækir í veiðivestið. Litakóðaðar stærðir á taumaefninu sem þú getur svo bara dregið út og klippt. Engar flækjur. Vertu bara með þetta á þér og ekki missa spóluna út vatnið og týna henni eða flækja allt í klessu.
Fjórar 50metra spólur af taumum í stærðum 1X til 4Xfylgja með. Færð ekki betri díl.
Efni: Flúorkarbon






