=== Gaman.is tenging ===
Requires at least: 6.2
Requires PHP: 7.4
WC requires at least: 7.0
Stable tag: 0.5.1

Tengir WooCommerce verslun við Gaman.is.

== Uppsetning ==

1. Sæktu viðbótina á Gaman.is undir Tenging → WooCommerce.
2. Í WordPress: Viðbætur → Bæta við → Hlaða upp viðbót → veldu skrána →
   Setja upp → Virkja.
3. Á Gaman.is: Tenging → WooCommerce → „Búa til lykil“.
4. Í WordPress: WooCommerce → Gaman.is → límdu lykilinn inn → „Tengjast
   Gaman.is“.
5. Þegar stendur „Tengt við Gaman.is – allt í lagi“ ertu tengd/ur.

Nýjasta útgáfan er alltaf á https://gaman.is/downloads/gaman-connect.zip

== Uppfærsla ==

Viðbætur → Bæta við → Hlaða upp viðbót → veldu nýju skrána → „Skipta út
núverandi útgáfu“. Lykillinn og tengingin haldast.

== Síðan í WordPress ==

WooCommerce → Gaman.is hefur þrjá flipa: Yfirlit (staða tengingarinnar,
síðustu 7 dagar og aðgerðir), Stillingar (pantanir og tenging) og
Aðgerðaskrá (allt sem Gaman.is breytir í versluninni og hafnaðar beiðnir).
Lyklinum skiptir þú um undir Stillingar → Tenging → „Skipta um lykil“, og
„Aftengja Gaman.is“ er neðst í sama reit.

Ef Gaman.is nær ekki sambandi: leyfðu beiðnir á /wp-json/gaman/v1/ í
Cloudflare eða öryggisviðbót.

== Hvað Gaman.is má gera í versluninni ==

Gaman.is les aðeins birtar vörur, flokka, verð og lager, skráir aðeins
pantanir sem gerðar eru á Gaman.is, lækkar lager um það sem selst þar og
uppfærir stöðu þeirra pantana. Gaman.is les aldrei viðskiptavini, aðrar
pantanir, afsláttarkóða eða stillingar og breytir aldrei verðum eða vörum.
Öll samskipti Gaman.is við viðbótina eru undirrituð, og lager er aðeins
lækkaður fyrir pantanir sem Gaman.is staðfestir.

Nánar:
* Lesa: birtar vörur, afbrigði, flokka, verð, tilboð, lager og þyngd.
* Lækka lager: aðeins fyrir Gaman-pöntun sem viðbótin hefur fyrst staðfest
  hjá Gaman.is (greidd, þessi verslun, þessar línur og þetta magn). Aldrei er
  sett ákveðin lagertala. Lager kemur aðeins aftur fyrir sömu línur, einu
  sinni, þegar Gaman.is staðfestir endurgreiðslu eða niðurfellingu.
* Skrá pöntun: aðeins staðfesta Gaman-pöntun, merkta _gaman_order_id, byggða
  á gögnum sem viðbótin sækir sjálf til Gaman.is. Mest 20 nýjar pantanir á
  klukkustund; fleiri er hafnað og Gaman.is látið vita.
* Uppfæra stöðu: aðeins Gaman-pantana, og aðeins stöðu sem Gaman.is staðfestir.
* Aldrei: breyta verðum, vörum eða stillingum, lesa viðskiptavini eða aðrar
  pantanir, afsláttarkóða eða skýrslur.

== Öryggi ==

* Hvert kall frá Gaman.is er undirritað (Ed25519). Viðbótin geymir aðeins
  opinberan lykil Gaman.is, svo ekkert sem geymt er í WordPress dugar til að
  þykjast vera Gaman.is. Köllum eldri en 5 mínútna og endurteknum köllum
  (sama auðkenni innan 10 mínútna) er hafnað.
* Lykill viðbótarinnar (gmn_…) er aðeins notaður í köll frá versluninni til
  Gaman.is. Þau köll eru líka undirrituð (HMAC-SHA256 með tíma og auðkenni)
  og fylgja aldrei tilvísunum (redirect).
* „Aftengja Gaman.is“ (WooCommerce → Gaman.is → Stillingar) lokar öllum endapunktum strax,
  lætur Gaman.is vita og eyðir lyklinum.
* Ef Gaman.is hættir að taka við lyklinum slekkur viðbótin á sér sjálf og
  sýnir „Ekki tengt“.
* „Aðgerðaskrá“ (WooCommerce → Gaman.is) sýnir allt sem Gaman.is breytir og
  allar hafnaðar beiðnir (tími, aðgerð, pöntun, niðurstaða); lestur birtist
  sem ein lína á samstillingu. Geymt í 90 daga, engar persónuupplýsingar.

== Hvað viðbótin gerir ==

* Sendir vörur, flokka, lager, verð, tilboð (líka tímasett tilboð) og þyngd
  til Gaman.is. Breytingar berast Gaman.is innan um mínútu, líka þegar annað
  kerfi (t.d. bókhaldstenging) breytir lager eða verði í gegnum WooCommerce.
* Pantanir frá Gaman.is koma inn sem venjulegar, greiddar WooCommerce
  pantanir:
  - Viðskiptavinur er Gaman.is (Áfram með Smjörið ehf.). Kaupandinn er
    aðeins skráður sem viðtakandi sendingar.
  - VSK á hverri línu, greiðslumáti „Gaman.is“, Gaman-pöntunarnúmer sem
    tilvísun.
  - Sending með Dropp/Póstinum er Gaman.is: 0 kr. á pöntuninni. Eigin
    afhending verslunarinnar (sækja/heimsending) heldur sínu verði.
  - WooCommerce sendir kaupandanum engan tölvupóst.
* Sendingar á Gaman-pöntunum eru eingöngu stilltar á Gaman.is.
* „Raða flokkum“ og „Sendingarstillingar“ opna viðkomandi síðu Gaman.is í
  glugga beint í WordPress.
* Sendingarmiði og rakningarnúmer birtast á pöntuninni þegar Gaman.is býr
  þau til.
* Þegar verslunin afhendir sjálf og merkir pöntunina „Lokið“ fær Gaman.is
  tilkynningu, og útgreiðslan losnar eftir 3 daga.

== Algeng vandamál ==

* Vefsíðan verður að nota https.
* Ekki tengja sömu verslun bæði með þessari viðbót og með WooCommerce-lyklum
  (REST) á Gaman.is. Veldu annað.
* Klukka vefþjónsins þarf að vera rétt (innan 5 mínútna), annars er köllum
  Gaman.is hafnað sem of gömlum.

== For developers ==

Endpoints (Gaman's Ed25519 signature required, no Bearer key):
/wp-json/gaman/v1/categories, /products, /stock/{id}, /stock-decrement,
/orders, /order-status. Signed text:
GAMAN-SIG-1\nMETHOD\nstore_id\npath\nsorted RFC 3986 query\nunix seconds\nrequest id\nsha256(body)
Headers: X-Gaman-Key-Id, X-Gaman-Timestamp, X-Gaman-Request-Id, X-Gaman-Store,
X-Gaman-Signature. Public key and store id: GET /api/public/feed/plugin-config.

external_id = WooCommerce product ID; variant external_id = variation ID.
Tables: {prefix}gaman_lines (stock moves, idempotency), {prefix}gaman_orders,
{prefix}gaman_nonces (replay guard), {prefix}gaman_log (action log).
Order meta: _gaman_order_id, _gaman_order_number, _gaman_commission_isk,
_gaman_card_fee_isk, _gaman_payout_isk, _gaman_handled_by, _gaman_buyer_*.
Per-product VAT: field "VSK á Gaman.is" on the product (post meta _gaman_vat_rate: 0, 11 or 24).
Filters/actions: gaman_connect_product_visible, gaman_connect_order_created.
Override Gaman's address for testing: define( 'GAMAN_CONNECT_API', 'https://...' ).

== Changelog ==

= 0.5.1 =
* Ný síða í WordPress (WooCommerce → Gaman.is) með flipunum Yfirlit,
  Stillingar og Aðgerðaskrá. Staða tengingarinnar efst, íslenskar
  dagsetningar, „Skipta um lykil“ og „Aftengja Gaman.is“ undir Stillingar.
* Aðgerðaskrá sýnir það sem Gaman.is breytir og hafnaðar beiðnir; hver
  samstilling er ein lína („Sýna líka lestur“).
* Engin breyting á öryggi, undirritun eða endapunktum. Lykillinn og
  tengingin haldast við uppfærslu.

= 0.5.0 =
* Öryggisútgáfa. Hvert kall frá Gaman.is er undirritað (Ed25519) og
  viðbótin geymir aðeins opinberan lykil Gaman.is. Gömlum og endurteknum
  köllum er hafnað.
* Lager er aðeins lækkaður og pöntun aðeins skráð eftir að viðbótin hefur
  staðfest pöntunina hjá Gaman.is. Mest 20 nýjar pantanir á klukkustund.
* Aðgerðir Gaman.is skráðar og sýndar eiganda (90 dagar), og „Aftengja
  Gaman.is“ lokar öllum aðgangi strax.
